Sigurður Rúnarsson
f. 19. mars 1974
Starfsferill
Sigurður lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í desember 1996. Hann starfaði að ýmsum störfum með skóla, þ.á. m. við garðyrkjustörf hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur, sem flokkstjóri í bæjarvinnu Reykjavíkurborgar og sem meindýraeyðir hjá Meindýravörnum Reykjavíkurborgar.
Frá því að Útfararþjónustan ehf. hóf starfsemi árið 1990 hefur Sigurður starfað hjá fyrirtækinu jafnt með skóla sem og í fullri vinnu. Sigurður er kerfisfræðingur að mennt.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist þann 6. júlí 2002, Guðnýju Örnu Sölvadóttur Beck. Bróðir Sigurðar er Elís Rúnarsson, starfsmaður hjá Útfararþjónustunni. Foreldrar Sigurðar eru Rúnar Geirmundsson, útfararstjóri og Kristín Sigurðardóttir.
