Velkominn á vefsíðu okkar
Frá því að fyrirtæki okkar var stofnað snemma árs 1990 höfum við notast við hefðbundna aðferðir í kynningu á fyrirtæki okkar þ.e. bæklinga og annað prentað efni. Árið 1997 var vinna hafin við að hanna og setja upp heimasíðu fyrirtækisins og sá sonur minn Sigurður um það verk ásamt mér en hann var þá við nám í kerfisfræði.
Við opnuðum fyrstu útgáfu heimsíðu okkar í mars 1998 og á þeim tíma var Internetið ungt og ekki enn ljóst hvernig slíkt kynningartól myndi henta fyrirtæki eins og okkar með rekstur sem útfararþjónustu. Fyrstu hugmyndir voru að birta í heild það prentefni sem við áttum í formi bæklinga en frá því var horfið þar sem við töldum það ekki myndi njóta sín í þessum miðli sem Internetið er.
Þess í stað var farin sú leið að gera vef okkar að upplýsingavef um útfarir almennt og þá siði og venjur sem þeim fylgja.
Við birtum myndir af kistum og flestu því sem fyrirtækið bíður uppá, einnig myndir frá athöfnum, blómauppstillingum og ítarlegt verð hafa verið birt hverju sinni til að auðvelda aðstandendum að gera sér grein fyrir kostnaðarliðum sem fallið geta til við útfarir.
Reykjavík
Rúnar Geirmundsson,
útfararstjóri


